05. desember 2008 klukkan 17:31
Hope For Every Fallen Man--Relient-K
As you push it up through the soil,
I will shake your filthy hand.
You may
be dead to me but that don't mean we can't be friends.
Now it's time to get
over this,
Long as it's clear you understand,
That I will never trust a
single thing you say again.
Because the judge of you is someone I could
never be,
Is why you should thank the Lord that it is Him, and it's not
me.
Don't give up, it's not the end,
There's hope for every fallen
man,
To pick themselves up when they think they can't,
Because with every
passing second comes a second chance.
You stole so much
from me and there is nothing left to take,
Save a hard learned lesson on how
to not make the same mistake.
And you may be delirious but that is something
that will fade,
After you confess that this mess is all something that you
made.
Oh, because the judge of you is someone I could never be,
Is why
you should thank the Lord that it is Him, and it's not me.
But don't give
up, it's not the end.
There's hope for every fallen man,
To pick
themselves up when they think they can't,
Because with every passing second
comes a second chance
Don't give up, it's not the
end.
You'll get back on your feet again.
Forgivness can be given when you
think it can't,
Because with every passing second comes a second
chance
'Cause with every passing second comes a second
chance,
Take a good look at yourself and know,
You've got yourself a ways
to go.
But difficult is not impossible,
You can take back all the lost
control.
Take a good look at yourself and see,
You'll emerge
eventually.
As long as your heart's not too far gone,
From the only thing
that can save you from yourself...
Forgivness can be given when you think
it can't,
'cause with every passing second comes a second chance.
But
don't give up, it's not the end.
There's hope for every fallen man,
To
pick themselves up when they think they can't,
Because with every passing
second comes a second chance,
Don't give up, it's not the
end.
You'll get back on your feet again.
Forgivness can be given when you
think it can't,
Because with every passing second comes a second
chance.
þóR
14. október 2008 klukkan 22:08
Afsakið kæri lil'bro og fleiri
Ég var byrjaður að blogga en þá truflaði Hjördís mig....

Thick As Thieves--Dashboard Confessional
Sleep--My Chemical Romance
Stay Together For The Kids--Blink182
þóR
18. september 2008 klukkan 23:48
Ónefnd manneskja sem heitir Kata kom framm skoðunn sinni á síðasta blogginu mínu
Hann/hún bað um að ég myndi blogga nýtt blogg
-Nú spyr ég bara-
Á ég að blogga nýtt blogg?
Þeir eða þau sem hafa skoðun mega endilega láta hana í ljós
Þá verð ég nefnilega svo kátur og glaður að það hálfa verði nóg
Takkfyrir
já?

þóR
29. ágúst 2008 klukkan 22:15
Ég sit hérna heima á föstudagskvöldi, örugglega í fyrsta sinn síðan bernskuárinn enduðu og unglingsárinn byrjuðu. Ég er merkilega rólegur yfir því. Venjulega er ég á hlaupum út um dyrnar ef ég er enn heima þegar klukkan er orðin þetta margt, kannski er ég bara að þroskast eða kannski er þetta bara 'one of those days'
Tími minn sem sjálfstæðum vinnandi einstaklingi í formlegheitum er hafinn. Ég er orðinn leikskólakennari á leikskólanum Ásum. Allt er að venju mjöög jákvætt á þeim vinnustað einsog nýji starfsmaðurinn hann Alex Ástinn/Estinn getur vitnað um. Allt gott og jákvætt. Spurðu hann og hann skal seigja þér það.
Það er samt algjör snilld að fá einn besta vinn minn sem er í þokkabót karlkyns inní þennan skemmtilega vinnustað . Eftir tvær vikur af mér umkringdum kvennfólki sem voru í 95% tilfella töluvert eldri en ég þá var það og gerði vinnustaðinn mun jákvæðari að fá hann í hópinn.
Einsog hann var nú ekki nógu jákvæður fyrir ;]
Ég hef ekki mikið meira að seigja. Ég ætti kannski að enda þetta á reynslusögu um mig og Alex sem gerðist rétt áðan....
Ég og Alex fórum á 'Asian Express' eftir vinnu til að ná í Köru. En eftir erfiðan vinnudag þá fer manni oft að hungra í e-h matarkyns. Þannig að við fengum mat í boði húsins og Köru. Hún byrjaði að skammta nokkur stykki af grjónum á diskinn og Alex var ekki alveg að fíla það og byrjaði að söngla 'Burt með grjóninn!' í svipuðum tón og maður syngur 'skítt með kerfið' og ég tók að sjálfsögðu undir, enda fannst mér þetta pínu fyndið. Ég veitti því enga athygli þegar að hann skyndilega hætti og varð mjög 'agló'.
Ég fattaði ekki afhverju fyrr en ég tók eftir kínverska fólkinu beint fyrir aftan mig á meðan ég var í miðri 'burt með helvítis grjóninn!' setningunni.
Þetta var semsagt mjööööög Agló
þóR
We Are One Tonight -- Switcfoot
Sam's Town[Abbey Road] -- The Killers
The Rock Show -- Blink 182
Alone I Break -- KoRn
Headspin -- Lukas Rossi
I Don't Love You -- My Chemical Romance
Main Offender -- The Hives
One Last Breath -- Creed
þóR
04. ágúst 2008 klukkan 22:57
Healer
You hold my every moment
You calm my raging seas
You walk with me through fire
And heal all my disease
I trust in You
I trust in You
I believe You're my Healer
I believe You are all I need
I believe You're my Portion
I believe You're more than enough for me
Jesus You're all I need
My Healer, You're my Healer
Nothing is impossible for You
Nothing is impossible for You
Nothing is impossible for You
You hold my world in Your hands
Textinn fyrir ofan var skrifaður af manni í Hillsong kirkjunni eftir að hann var greindur með ólæknandi krabbamein. Hann skrifaði lagið eftir að heyra að hann ætti e-h mánuði eftir lifaða og kórónaði þetta með því að koma fram á samkomu með súrefnisslöngur og súrefniskút og syngja lagið af hjarta og sál. Þetta er maður sem ég get ekki annað en litið upp til og hugsað með mér 'bara ef allir væru svona trúfastir'
Það sem mér hefur þótt hvað erfiðast á minni kristnigöngu er að lofa Guð þegar mér gengur illa á persónulegum og ýmsum sviðum í lífinu. tvöþúsundogátta hefur fyrir mér verið mjöög erfitt ár. Mistök hafa verið gerð og Það hefur verið barið á trúnna á sjálfan mig og sjálfsvirðingu. Þegar ég lyfti höndunum upp honum til dýrðar þá voru þær nánast strax komnar niður og þegar ég bað þá hætti ég fljótt útaf því að mér fannst ég hafa ekkert við hann að seigja.
Þetta gerist þegar maður leyfir sér að hugsa hvað lífið sé bara erfitt og bara skelfilegt. Djöfulinn bankar á dyrnar og maður opnar og hlustar síðan blindur á það sem hann hefur að seigja. Maður gleymir vinunum og fjölskyldunni sem Guð hefur gefið manni til að styðja mann í gegnum súrt og sætt og hugsar bara um hvað maður á erfitt líf.
Ástæðan fyrir að ég skrifa þetta blogg er að ég veit að ég er ekki sá eini sem er að ganga í gegnum þessa hluti og e-h svipað. Vakninginn þarf nefnilega ekki að vera langt undan, ég er held að það þurfi bara aðeins meira 'effort' frá okkur og djöfulinn veit það og sparar því ekki skotfærinn til að toga okkur einslangt niður á botninn og hann mögulega getur.
Okkur er sagt að lofa hann í gegnum súrt og sætt og það er ástæða fyrir því. Guð notar fólkið sem rís upp þegar djöfulinn reynir hvað mest til að draga það niður. Guð notar fólkið sem berst gegn straumnum honum til dýrðar sama hversu erfitt það er....
Það er e-h sem ég og fleiri þurfum að taka okkur til fyrirmyndar...
Guð blessi ykkur!
þóR
þóR
21. maí 2008 klukkan 13:41
Ég get alveg viðurkennt að totas.bloggar hefur sjaldan eða aldrei verið jafn ömurleg og hún er núna, mjög fá blogg hafa litið dagsins ljós á árinu 2008. Ég veit ekki, kannski eru allir svo góðu vanir frá mér en þótt að allir séu greinilega að verða brjálaðir þá er ég alls ekki versti bloggarinn á svæðinu. Rosalega eru allir fljótir að draga ályktanir. Síðan andar ekki í mánuð og þá halda allir að hún sé dáinn. Þetta kalla ég bara fljótfærni. Totas.bloggar er alls ekki dáinn
Ekki sjensss!
Undanfarinn mánuður hefur verið mikið flipp og mikið gaman. Sumarið er komið og það þýðir nátturlega bara fótbolti á kvöldinn. Búið að vera mjöög mikið af því undanfarið. Fíló fótbolti er byrjaður aftur á sunnudagskvöldum og svo þá tókst mér að taka þátt í American Style vinnustaðar fótbolta.
Flippið og aglóköst er líka byrjuð og Alex Ástinn á megnið í þeim efnum. Það virðist vera hægt að flippa og gera hann agló í nánast hvaða aðstæðum sem hægt er að finna. í gær þá tókst mér að gera hann mjög hræddan þegar ég kom aftan að honum og þóttist vera reiður öryggisvörður á SubWay sem ætlaði að henda honum út. Stuttu seinna þá stökk ég á hann úr myrkrinu og gerði hann verulega hræddan og síðan agló þegar hann fattaði að þetta væri bara ég.
Allavega þá datt mér og Hafsteini stunglappa að kóróna þetta og bregða honum virkilega í þriðja sinn á kvöldinu. Planið var að vera á undan honum heim til hans og bíða eftir honum þar. Kara gerði allt til að stöðva bílinn sem hann var í enda var hann af sjálfsögðu hraðskreiðari en benzinn minn. Hún, sem var með okkur í þessu þóttist vera bílveik til að kaupa tíma handa okkur. Við komumst langt á undan þeim heim til Alex og ætluðum að bíða þar og bregða honum. Við tókum okkur stöðu fyrir aftan bíla sem voru fyrir framan innganginn hans. En við vorum nátturlega í Breiðholtinu, Tha Ghetto. Og tveir hettuklæddir strákar bakvið bíla í ghettóinu eru sjaldan taldir ekki grunnsamlegir. Þannig að ég og Hafsteinn biðum rólegir og spenntir eftir Alexi en áður enn hann kom þá kom löggan, sem hafði verið kölluð út á okkur. Svo á meðan við vorum að útskýra hvað við hefðum ætlað að gera þá kom Alex heim þannig að því miður gekk þetta ekki alveg upp. Þetta var eiginlega svolítið mikið feil
King FAIL.
Mér fannst þetta vera samt svolítið mikið góð saga.
Þetta blogg var skrifað til allra sem lesa þetta og héldu að totas.bloggar væri dáinn
EKKI SJENNS!
Foxtrot Uniform Charlie Kilo--Bloodhound Gang
The Air Near My Fingers--White Stripes
Say Goodbye Hollywood--Eminem
Hate To Say I Told You So--The Hives
Beware! Criminal!--Incubus
Joker & The Thief--Wolfmother
þóR
26. apríl 2008 klukkan 14:42
Ég var rétt í þessu að skoða mbl.is og þá var mér bent á ansi skemmtilega innlenda frétt sem heitir: 'matur ekki einkaþotur '
Við fyrstu sýn virðist þetta vera frábært frammtak og það er það kannski að mestu leyti
Hérna er fréttin: http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/04/26/matur_ekki_einkathotur/
Matur ekki einkaþotur
Nýstofnuð samtök sem nefna sig Matur ekki einkaþotur hyggjast gefa fátækum, heimilislausum og þeim sem vilja þiggja mat á Lækjartorgi klukkan eitt næstu laugardaga. Samtökin eru byggð á bandarískri fyrirmynd sem nefnist Food not bombs á ensku.
Matinn fá samtökin gefins hjá ýmsum stuðningsaðilum, verslunum og öðrum sem ekki vilja láta nafns síns getið. Einungis er boðið upp á grænmetisfæði til að allir geti notið matarins.
„Þetta er alþjóðleg hreyfing fólks sem pirrar sig á því hvað lítið sé gert í málefnum fátækra og heimilislausra en nægt fé er til fyrir stríðsrekstri," sagði Snorri Jónsson einn af aðstandendum hreyfingarinnar á Íslandi.
„Til að byrja með ætlum við að kalla samtökin Matur ekki einkaþotur þar sem það er ekki mikil tenging við sprengjur hér á Íslandi," sagði Snorri að lokum.
Ég veit ekki hvort þið takið eftir þessu skemmtilega sem ég er að tala um, en í fréttini er talað um það að einungis sé boðið uppá grænmeti svo að allir geti nú verið glaðir.
Ég hef enga persónulega reynslu í því að vera heimilislaus en ég veit samt að ég væri ekkert mjög glaður ef ég myndi vera redda mér fríum alvöru mat en væri synjað vegna þess að báðar heimilausar grænmetisæturnar vildu ekki hafa kjöt á matseðlinum.
Er virkilega svo flókið að skipta þessu svona í tvennt svo að í alvöru geta allir verið glaðir?
En ef þetta lagst, þá skal ég viðurkenna að þetta sé snilldar frammtak
:]
þóR
þóR
09. apríl 2008 klukkan 20:29
Rosalega getur þetta líf verið erfitt og ósanngjarnt. Fór til afa fullur eftirvæntingar að horfa á fótbolta í gær og fór síðan burt fullur af viðbjóði. Rosalega fær þetta Liverpool lið mikla aðstoð frá dómurunum. Ef dómararnir halda svona áfram á þeirra braut þá eiga þeir eftir að vinna hvaða lið sem er. Ég er semsagt verulega ósáttur með gærkvöldið. Liðið mitt tapaði fjögur - tvö. Ef þið viljið fá nánnari lýsingu á andlegu fótboltahliðinni minni þá skaltu spurja mig og ég skal seigja þér að hún er ekki góð.
Fór í glataðasta fótbolta sem ég hef spilað í langan tíma. Það var alveg ágætlega gaman nema að ég og fleiri vorum fíflaðir af einhverjum smápollum sem voru minni en 150cm. Alveg verulega góðir í fótbolta en ég vil samt ekki trúa að þeir hafi verið nógu góðir til að rústa okkur tuttuguogfimm - fjögur.
En þetta blogg á sko allsekki að vera endalaust væl um fótbolta sem flestir vinir mínir gætu ekki verið meira sama um. Alex gekk meiraðseigja svo langt að biðja mig um að beila á fótboltanum fyrir sig! Við erum sko að tala um einn stærsta leik ársins!
Þið skilið þetta bara ekki!;)
Sahara Rós hélt uppá afmælið sitt á laugardagskvöld. Afmælið byrjaði kl 20:30 en ég var ekki mættur fyrr en um hálf ellefu. Ástæðan fyrir seinkomunni var samt gild og góð. Ég, Pétur, Hafsteinn, Dabbi og Kata vorum sko að búa og plana gjöfinna. Allt gerðist á síðustu stundu. Ég hringdi áhyggjufullur í Hafsteinn hálf sex sem er eiginlega hálftíma fyir lokun í öllum búðum. Hann stakk þá uppá verulega sniðugari gjöf. Ég fékk það hlutverk að redda fallegri Rauðhettukörfu. Ég fór uppí Rúmfó og fann ekkert. Þá var það bara plan B. Ég sótti Pétur nágranna kl hálf níu, sem er hálftíma fyrir lokun á blómabúðum. Þetta átti alveg að ganga 'smooth' ef blómabúðinn á bústaðarvegi hefði ekki verið lokuð vegna árshátíðar. Þá var alltíeinu bara 10mín í lokun á öllum blómabúðum og ég hafði ekkert sérstakt vit á hvar þessar blessuðu búðir héldu sig. Við náðum samt að komast í Blómaval einsog allir skemmtilegu viðskiptavinirnir gera, eina mínutu fyrir lokun. Keyptum fimm rósir og eitt stykki Rauðhettukörfu. Þá komu Hafsteinn, Dabbi og Kata inní og við hittum þau á Select og keyptum fullt af nammi, eitt epli og síðan tannbursta og tannkrem og tróðum því í Rauðhettukörfunna og síðan hjálpaði mamma hans hafsteinns okkur að stílisera hana svolítið. Þetta tók semsagt rúmlega tvo klukkutíma.... Enda var útkomann himnesk!
Í afmælinu sungum við SingStar, flippuðum og spiluðum Actionary þar sem Jóhannes og Eyþór héldu alltaf að ég væri að leika samkynhneigðann mann og að gatið í eyranu væri semsagt bara partur af spilinu.
Ég held að það hafi ekki verið neitt meira
Jú Bíddu!
Ef e-h Anna María spyr
Þá heiti ég Pétur
OK?
þóR
Under My Umbrella--Incubus
Megalomaniac--Incubus
Colossal--Wolfmother
Dady's Eyes--The Killers
Nobody's Home--Avril Lavigne
Mama--My Chemical Romance
Rock The Party--P.o.D
Change Your Mind--The Killers
Zwitter--Rammstein
þóR
02. apríl 2008 klukkan 09:53
Þegar maður er með bloggsíðu og hefur dygga lesendur af e-h ástæðum þá er eins gott að halda henni uppi. Ég er frekar ánægður með það að þótt ég sé ekki búinn að blogga af miklu viti þá heldur 'the' fólkið alltaf áfram að tjekka á síðunni og kommenta. Það finnst mér allavega vera verulega flott!
Ekkert mikið búið að vera að gerast uppá síðkastið. Helgin var óvenju róleg, ég fór held ég bara snemma að sofa eftir öll kvöldin. Það var samt gaman, ég fór á spilakvöld hjá Kötu þarsem ég, Sahara, Sara, Helga og svo að sjálfsögðu Kata spiluðum 'Trivial Pursuit'. Ég var með Sahara[Sahöru] og Söru í liði. Við hefðum náð að rústa þessu ef Sara hefði einbeitt sér meira að réttu svörunum enn röngu.
Í gær þá tókst mér að vera í Kringlunni í þrjá klukkutíma! Alex ástinn gaf mér stuðning í gegnum símann á meðan Helga [litla] labbaði um alla kringluna með vinkonum sínum og endaði á að kaupa sér ekki neitt! Það var samt sem betur fer ekkert farið í 'La Zenza' í þetta sinn þannig að þetta var ekkert alslæmt...
Mig langar að enda þetta blogg á að óska nokkuri Sahara Rós til hamingju með afmælið!
Hún er 16ára í dag og má þ.a.l fara að læra á bíl og hún ætlar að vera á undan mörgum sem eru eldri og latir að fá bílpróf
Til hamingju mep daginn;)
Numb/Encore---LinkinPark feat. Jay Z
Spiderman vs Flash---Tenacious D
Man Overboard---Blink182
Free---Hillsong
Sleep Now In The Fire---Rage Against The Machine
Taste In Man---Placebo
Day By Day---Dc Talk
Leaving So Soon---Keane
þóR
25. mars 2008 klukkan 18:16

Ég hef ákveðið að láta aðeins heyra í mér á þessari síðu. Undanfarnar vikur og mánuði hefur e-h slökknað á mér í blogginu og ég veit eiginlega ekkert afhverju. Ég held samt að þetta á eftir að líða hjá og einhverntímann á næstunni á ég eftir að blogga af miklum krafti þannig að það verður nóg að gera hjá ykkur sem kommenta hjá mér.
Það vita held ég allir vinir mínir hvað er að frétta af mér vegna þess að það breiddist út á ljóshraða. Þannig að það er ekkert 'point' í að tala lengi um það. Fyrir utan það góða þá er allt hitt held ég líka bara mjööög jákvætt.
Ákkúrat núna er ég að læra.
Ákkúrat núna þá á ég að vera að læra en er að blogga. Þetta blogg er samt bara smá færsla til að minna ykkur á að ég er ekki dáinn og sé enþá lifandi með putta sem geta skrifað löng blogg aftur seinna
En endilega kommentið bara til að seigja eitthvað?
ok?
Hey, hey.....
Bæ....
þóR